Íslendingar hafa aldrei byrjað betur en Þjóðverjar aldrei verr Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. október 2014 17:30 Thomas Müller. Vísir/Getty
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta hefur fyrir löngu sett met með því að vinna þrjá fyrstu leiki sína í undankeppni EM 2016 en það gengur ekki eins vel hjá heimsmeisturum Þjóðverja. Þýska liðið hefur „aðeins" náð í fjögur stig út úr fyrstu þremur leikjum sínum í undankeppninni. Það hefur aldrei gerst áður. Það er ekki nóg með að þýska liðið hefur þegar "tapað" fimm stigum þá er markatalan í mínus (-1, 3-4). Þýskaland tapaði 0-2 á móti Póllandi í fyrri leik sínum þessari törn og náði síðan aðeins 1-1 jafntefli á móti Írlandi í seinni leiknum þar sem að Írarnir jöfnuðu með marki á fjórðu mínútu í uppbótartíma. Þjóðverjar unnu 2-1 sigur á Skotum í fyrsta leik og eru ofar en Skotar á markatölu í 3. sæti riðilsins. Fyrir ofan þá eru Pólverjar og Írar sem eru með þremur stigum meira eða 7 stig af 9 mögulegum. „Við höfum auðvitað reiknað með því að fá fleiri stig út úr októberleikjunum. Næst mætum við hinsvegar Gíbraltar og þann leik vinnum við. Við fáum síðan leikmenn til baka úr meiðslum og verðum tilbúnir í slaginn á næsta ári," sagði Joachim Löw, þjálfari þýska liðsins. Þýska landsliðið hefur nú leikið fjóra leiki síðan að liðið varð heimsmeistari í Ríó 13. júlí síðastliðinn en aðeins náð að vinna einn þeirra. Auk leikjanna í undankeppni EM þá tapaði liðið 2-4 í vináttuleik á móti Argentínu í byrjun september.
EM 2016 í Frakklandi Fótbolti Þýski boltinn Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Fleiri fréttir Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Sjá meira