Hallgrímur Mar: Ætla sýna hvað ég get í Pepsi-deildinni Tómas Þór Þórðarson skrifar 17. október 2014 15:30 Hallgrímur Mar Steingrímsson í búningi Víkings í dag. vísir/tom „
Þetta er bara mjög flott og fínt skref fyrir mig á mínum ferli,“ segir Hallgrímur Mar Steingrímsson, nýjasti leikmaður Pepsi-deildar liðs Víkings, við Vísi. Húsvíkingurinn skrifaði undir þriggja ára samning við Fossvogsfélagið í dag, en hann hefur verið á meðal bestu leikmanna 1. deildarinnar undanfarin ár þar sem hann spilaði með KA. „Mér fannst þetta vera rétti tíminn að taka skrefið þó ég hefði getað tekið það fyrir einu til tveimur árum. Mér fannst ég skulda KA aðeins og vildi vera þar lengur,“ segir Hallgrímur sem skoraði 22 mörk í 58 leikjum síðustu þrjú sumur með Akureyrarliðinu. „Nú fannst mér ég vera kominn á endastöð, en KA kom svo vel fram við mig og vildi allt fyrir mig gera á mínum erfiðu tímum. Ég vildi reyna að gera eitthvað gott fyrir þá, en því miður tókst það ekki.“ Hallgrímur var með nokkur félög á eftir sér að eigin sögn, en hann æfði með bikarmeisturum KR fyrr í mánuðinum. Hvað kom til að hann skrifaði undir við Víking? „Ég fór á fund með Óla Þórðar og Milos [Milojevic] um daginn. Það sem þeir sögðu heilluðu mig. Hér er flott stefna og mér líst vel á markmiðin. Það er mikill metnaður í félaginu fyrir að ná árangri,“ segir Hallgrímur. Víkingar spilaði í Evrópu næsta sumar í fyrsta sinn í 23 ár, en það var ekkert sem heillaði Húsvíkinginn neitt sérstaklega. „Ég vissi alveg af Evrópukeppninni, en Víkingur hefði alveg heillað mig alveg jafnmikið þó liðið væri ekki í Evrópu. Mér leist bara vel á Óla, Milos og markmið félagsins,“ segir hann. Hallgrímur segist fullviss um að hann geti tekið skrefið upp í Pepsi-deildina og sýnt sömu hluti í deild þeirra bestu og hann hefur gert í 1. deildinni. Hann hefur þó varann á. „Það hafa einhverjir kannski ekki náð að sanna sig en stefnan hjá mér er klárlega að sýna hvað ég get og festa mig í sessi í Pepsi-deildinni. Ég hef líka fulla trú á að ég geti það,“ segir Hallgrímur Mar Steingrímsson.
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Hallgrímur Mar samdi við Víking Húsvíkingurinn spreytir sig í Pepsi-deildinni í fyrsta sinn næsta sumar. 17. október 2014 15:00 Mest lesið Segja Viktor læra af þeim besta hjá Barcelona og greina frá næsta félaga hans Handbolti Ernirnir flugu hátt í Super Bowl og rassskelltu meistarana Sport Mikil sorg í hnefaleikasamfélaginu eftir óvænt andlát Sport Sumarfrí, siðareglur, fleiri varamenn og ekki mismunað eftir þjóðerni Fótbolti Dansari smyglaði inn fánum á sýninguna á Super Bowl Fótbolti Hneyksli í Tyrklandi: Fóru heim í fýlu yfir víti Fótbolti Slot sér ekki eftir því að hafa hvílt stjörnurnar Enski boltinn Lögreglan rannsakar söngva um stunguárás Enski boltinn Tilþrif ársins í NFL-deildinni: „Þetta er fáranlegt“ Sport Unnu Super Bowl á afmælisdaginn Sport Fleiri fréttir Framarar fundu strax leið úr skammarkróknum Tvær þrennur í níu marka stórsigri Hrannar með þrennu gegn Þór Sjáðu sigurmark Örvars og önnur mörk úr Lengjubikarnum Íhugaði að lauma mynd af húsinu í myndaalbúm fjölskyldunnar ÍR vann níu FH-inga og Valskonur í stuði Hituðu upp fyrir Grikkina í snjónum: Danna þema hjá Víkingum Martraðarbyrjun Róberts í Víkingstreyjunni Einar heim í Hafnarfjörðinn Húsvíkingurinn frá KR til Þróttar Framarar lausir við Frambanann Cousins búin að semja við Þrótt FH hreppir Rosenörn og Kötlu Fer í Fram eins og pabbi sinn forðum Kristófer endurnýjar kynnin við Óskar Hrafn í KR Aron Sig nýr fyrirliði KR Fram lagði Íslandsmeistara Breiðabliks Heiðdís aftur í Kópavoginn Þjálfarar Vals komu ekki af fjöllum varðandi Katie Katie Cousins í Þrótt eftir að Valur taldi hana of dýra FIFA setti íslensk félög í bann án þess að láta vita „Það fór eitthvað leikrit í gang“ Ísfold Marý til liðs við Víking Reykjavíkurmeistarar KR byrja Lengjubikarinn á sigri Björn sagður rekinn vegna utanfarar í stórafmæli mömmu Róbert Orri semur við Víkinga Berglind Björg strax byrjuð að skora fyrir Blika Guy Smit frá KR til Vestra Ekki hrifinn af tvöfaldri sekt frá KSÍ: „Af hverju að gera það?“ Íslandsmeistararnir unnu Þungavigtarbikarinn Sjá meira
Hallgrímur Mar samdi við Víking Húsvíkingurinn spreytir sig í Pepsi-deildinni í fyrsta sinn næsta sumar. 17. október 2014 15:00