Taylor Swift ásökuð um kynþáttahatur Þórður Ingi Jónsson skrifar 20. ágúst 2014 14:30 Úr myndbandinu "Shake It Up". Taylor Swift í skopparafötum með "gettóblaster".
Söngkonan bandaríska Taylor Swift mun gefa út nýju plötuna sína 1989 í október. Myndband fyrir fyrstu smáskífuna af plötunni, Shake it Off, var gefið út í seinustu viku. Af laginu að dæma virðist Swift hafa fært sig í burtu frá kántrípoppinu sem hún varð fyrst fræg fyrir. Nýir straumar í tónlist hennar hafa þó ekki verið mikið til umræðu vestanhafs eftir að myndbandið kom út heldur hefur Swift verið ásökuð um kynþáttahatur. Er hún sögð ýta undir staðalímyndir um svart fólk með myndbandinu. Blaðakonan Amy Zimmerman lýsti yfir skoðun sinni á myndbandinu á The Daily Beast fréttamiðlinum. Hún telur að í myndbandinu séu hugsanlega skaðlegar staðalímyndir þar sem litaðir dansarar eru notaðir sem eins konar „leikmunir“. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem hvítar poppstjörnur hafa verið ásakaðar um að framfleyta staðalímyndum um kynþætti en söngkonurnar Miley Cyrus, Lily Allen og Sky Ferreira voru einnig ásakaðar í ár um að nota fólk af öðrum kynþáttum sem „leikmuni“ á sviði eða í myndböndum. Rapparinn Earl Sweatshirt úr rapp- og listahópnum Odd Future gagnrýndi Swift á Twitter-síðu sinni, þó að hann sagðist reyndar ekki hafa þurft að sjá myndbandið til að geta gagnrýnt það. „Ég þarf ekki að sjá myndbandið til að segja ykkur frá því að það er í eðli sínu særandi og einfaldlega skaðlegt að framfleyta staðalímyndum um svarta fyrir þann sama markhóp hvítra stúlkna sem felur eigin fordóma með því að segjast elska menningu okkar. Til dæmis þau ykkar sem hræðast svart fólk en elska að það sé allt í lagi fyrir ykkur að „twörka“ eða segja „nigga“ árið 2014.“ Blaðamaðurinn Forrest Wickman á Slate.com er ósammála þessu og segir að myndbandið eigi að vera „vandræðalegt“ og að með þessu vilji Swift segja að hún geti aldrei notað hluti eins og „twörk“, sem eiga uppruna sinn hjá öðrum menningarhópum, og gert það á sannfærandi hátt. Hingað til hefur Swift ekki svarað þessum ásökunum. En er myndbandið rasískt? Dæmi hver fyrir sig:
Tónlist Mest lesið Hélt við konu besta vinar síns Lífið Selur íbúð með náttúruparadís í bakgarðinum Lífið „Ekkert gengið að casha út á pabba“ Menning Tom Cruise hrasar á síðasta snúning Gagnrýni Heldur sér við efnið og burt frá efnunum Tónlist Einn heppinn vinnur frítt flug í heilt ár með PLAY Lífið samstarf Fréttatía vikunnar: Trump, Parkinson og fótbolti Lífið Garðar Gunnlaugs og Fanney Sandra flytja á Selfoss Lífið Skjaldborg í átjánda sinn: „Ef maður býr á svona stað og vill eitthvað þá verður maður að hafa fyrir því sjálfur“ Menning Hildur Yeoman lofuð í hástert á Style Bubble Lífið Fleiri fréttir Heldur sér við efnið og burt frá efnunum Þykja skuggalega lík Fleetwood Mac „Okkur var ekkert cancelað, nema hann bara gerði það sjálfur“ Heitustu rapparar landsins í eina sæng Sigur Rós í Handmaids Tale Einn heitasti plötusnúður í heimi á leið til landsins Nauðsynlegt að gera upp fortíðina Frumflutti „Hver er sá besti“ í Fíladelfíu árið 1985 Kærleiksbomba frá GusGus Nýtt lag frá VÆB-bræðrum: „Bíðið bara, það verður epic!“ „Maður er í elífu straffi sem tónlistarmaður, getur ekki gert neitt annað“ Óhræddir við raunverulegar tilfinningar Kaleo með tónleika á Íslandi í fyrsta sinn í áratug Davíð í Kaleo bjó til flöskutrommusett Sjá meira
Skjaldborg í átjánda sinn: „Ef maður býr á svona stað og vill eitthvað þá verður maður að hafa fyrir því sjálfur“ Menning
Skjaldborg í átjánda sinn: „Ef maður býr á svona stað og vill eitthvað þá verður maður að hafa fyrir því sjálfur“ Menning