Handsömuðu ísraelskan hermann Stefán Ó. Jónsson skrifar 20. júlí 2014 23:51 Áhugasamir Ísraelsmenn horfa yfir á átakasvæðið á Gasa VÍSIR/AFP
Hamas lýsti því yfir í kvöld að samtökin hefðu ísraelskan hermann í haldi sínu. Þetta kom fram í máli talsmanns al-Qassam herdeildar Hamas sem sjónvarpað var í beinni útsendingu á Ma‘an fréttaveitunni. Talsmaðurinn, Abu Ubaida, sagði í ræðu sinni að nafni hermannsins væri Shaul Aron og skráningarnúmer hans væri 6092065 en almannatengiliður ísraelska hersins vildi ekki staðfesta þessar fregnir þegar eftir því var leitað. Tilkynnt var um handsömunina örfáum klukkustundum eftir að ísraelski herinn lýsti því yfir að Palestínumenn hefðu fellt 18 hermenn úr þeirra röðum frá því að landhernaður þeirra hófst á fimmtudag. Í kjölfar fregnananna brustu út fagnaðalæti í Palestínu. Af því tilefni var skotið af rifflum og kveikt í flugeldum í borgum fyrir botni Miðjarðarhafs, til að mynda í Gasaborg og Betlehem. Rúmlega 100 Palestínumenn féllu í átökum dagsins í dag, sem er sá blóðugasti síðan árið 2008. Þar af létust 66 í Shujaiyya hverfinu í austurhluta Gasaborgar. Talið er að um 6000 Palestínumenn sitji í ísraelskum fangelsum og er mörgum þeirra haldið án dóms og laga. Hamas handsamaði ísraelskan hermann síðast árið 2006 og var hann þá í haldi samtakana í tæplega sex ár. Hermaðurinn, Gilad Shalit, var leystur úr haldi Hamas í skiptum fyrir 1000 Palestínska fanga árið 2011.
Gasa Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira