Körfubolti

Geturðu stillt upp besta NBA-liði sögunnar fyrir 15 dali?

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Það er nóg eftir ef vinirnir Jordan og Pippen eru hafðir saman.
Það er nóg eftir ef vinirnir Jordan og Pippen eru hafðir saman. Vísir/getty
Körfuboltavefsíðan ballislife.com setti inn skemmtilegan leik á Twitter-síðu sína sem hefur vægast sagt vakið mikla athygli.

Hann snýst um að velja besta lið sögunnar í NBA fyrir 15 dali en fimm bestu leikmennirnir, að mati síðunnar, í hverri stöðu eru listaðir upp og þeir verðlagðir á 1-5 dali.

Þetta hefur fengið körfuboltaunnendur á flug og ræða menn nú málin eða hnakkrífast. Að sjálfsögðu eru ekki allir á eitt sáttir við hvernig mennirnir eru verðlagðir og finnst mörgum Boston-mönnum til dæmis furðulegt að LeBron James skuli vera dýrari en LarryBird.

En flestir taka nú bara þátt í leiknum og stilla upp sínu besta liði. Bandaríska fréttasíðan Bleacher Report skrifar um leikinn og hefur þeirri frétt verið deilt hátt í 30.000 sinnum og hafa hátt í 2.000 manns sett inn sín lið í athugasemdakerfið.

Nú er bara að setja saman sitt eigið lið en það má vitaskuld bara taka einn leikmann úr hverri stöðu.

Dæmi um 15 dala lið: John Stockton ($2), MichaelJordan ($5), LeBron James ($5), DirkNowitzki ($2), Hakeem Olajuwon ($1).

Leikmennirnir sem má velja úr:

Leikstjórnendur:

Magic Johnson $5

Oscar Robertson $4

Isiah Thomas $3

John Stockton $2

Walt Frazier $1

Skotbakverðir:

Michael Jordan $5

Kobe Bryant $4

Jerry West $3

Clyde Drexler $2

Dwayne Wade $1

Litlir framherjar:

LeBron James $5

Larry Bird $4

Julius Erwing $3

Kevin Durant $2

Scottie Pippen $1

Kraftframherjar:

Karl Malone $5

Charles Barkley $4

Tim Duncan $3

Dirk Nowitzki $2

Kevin Garnett $1

Miðherjar:

Kareem Abdul-Jabbar $5

Bill Russell $4

Wilt Chamberlain $3

Shaquuille O'Neal $2

Hakeem Olajuwon $1

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×