Körfubolti

Hótaði að drepa fjölskyldu leikmanns Wizards

Marcin Gortat.
Marcin Gortat. vísir/getty
Einhverjir stuðningsmenn NBA-liðsins Chicago Bulls réðu illa við mótlætið í úrslitakeppni deildarinnar er Washingon Wizards pakkaði Bulls saman.

NBA-deildin og lögreglan rannsökuðu uppákomu á Twitter þar sem tveir leikmenn Wizards fengu hótanir.

Ekki bara var leikmönnunum hótað því sagt var að sprengja væri um borð í flugvél liðsins.

"Þetta er bara fyndið. Fólk getur verið svo skrítið," sagði Marcin Gortat, leikmaður Wizards, en hann lenti í skotlínunni.

"Þessi sem hótaði mér sagði að fjölskyldan mín myndi deyja og að landið mitt yrði sprengt í loft upp. Svona hluti sem fólk segir á hverjum degi," sagði Gortat léttur en hann er frá Póllandi.

Þess má geta að flestir pólskir innflytendur í Bandaríkjunum búa í Chicago.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×