Körfubolti

Miami tapaði og Indiana aftur á toppinn | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Miami Heat gaf eftir efsta sæti austurdeildar NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt þegar liðið tapaði á útivelli fyrir Memphis Grizzlies, 107-102.

Indiana Pacers, sem hefur átt afleitu gengi að fagna að undanförnu og hefur verið slátrað í fjölmiðlum vestanhafs, vann á sama tíma nauman útisigur á Milwaukee Bucks, 104-102, og er einum leik á undan Miami í efsta sætinu.

Indiana á þrjá leiki eftir en Miami fjóra og þá eiga liðin eftir að mætast einu sinni innbyrðis í Miami sem gæti verið úrslitaleikur um toppsætið og þar af leiðandi úrslitaleikur um heimaleikjarétt út alla úrslitakeppnina í austrinu.

Í spilaranum hér að ofan má sjá laglega troðslu LeBron James í leiknum í nótt.

Tíu flottustu tilþrif næturinnar


LeBron James skoraði 37 stig fyrir Miami í nótt sem er enn án DwayneWade. ChrisBosh bætti við 12 stigum fyrir Miami en hjá Memphis áttu Zach Randolph (25 stig, 11 fráköst), Mike Conley (26 stig, 6 fráköst) og Marc Gasol (20 stig, 14 fráköst) allir stórleik.

Frank Vogel, þjálfari Indiana, hvíldi allt byrjunarliðið sitt á móti Milwaukee. DavidWest, Paul George, George Hill og Lance Stephenson sátu allir á bekknum allan tímann og þá var Roy Hibbert ekki einu sinni í leikmannahópnum.

Luis Scola var stigahæstur gestanna með 24 stig og Evan Turner skoraði 23 stig en Brandon Knight var stigahæstur heimamanna með 25 stig.

Úrslit næturinnar:

Cleveland Cavaliers - Detroit Pistons 122-100

Orlando Magic - Brooklyn Nets 115-111

Toronto Raptors - Philadelphia 76ers 125-114

Washington Wizards - Charlotte Bobcats 88-94

Atlanta Hawks - Boston Celtics 105-97

Memphis Grizzlies - Miami Heat 107-102

Milwaukee Bucks - Indiana Pacers 104-102

Minnesota Timberwolves - Chicago Bulls 87-102

New Orleans Pelicas - Phoenix Suns 88-94

Denver Nuggets - Houston Rockets 123-116

Portland Trail Blazers - Sacramento Kings 100-99

Los Angeles Clippers - Oklahoma City Thunder 101-107

Staðan í deildinni.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×