Dreifa klámmyndum af ungum stúlkum en sleppa Kjartan Atli Kjartansson skrifar 16. apríl 2014 13:42 Stúlkurnar eru í flestum tilfellum nafngreindar og sagt frá hvaða bæjarfélagi þær koma frá svo ekki fari á milli mála hverjar um ræðir.
Lögreglan hér á landi starfar með lögregluembættum erlendis við rannsókn á vefsíðu sem sýnir nektarmyndir af íslenskum táningsstúlkum. Vesíðan er hýst erlendis. Síður af þessu tagi, sem birta myndir af íslenskum stúlkum, hafa skotið upp kollinum síðan árið 2008 og hefur lögreglan lokað nokkrum þeirra í samstarfi við lögreglu erlendis. Dæmi eru um að lögreglan hafi jafnvel haft upp á þeim mönnum sem birtu myndirnar en þeir hafa ekki verið ákærðir, því þeir gerðust ekki brotlegir í íslenskri lögsögu; síðurnar eru hýstar erlendis. Mál af þessu tagi vekja upp spurningar um hvort rétt sé að uppfæra löggjöf sem snýr að þeim sem birta það sem flokkast sem barnaklám á netinu.Biðja um myndir af tilteknum stúlkum Í gær greindu Fréttablaðið og Vísir frá því að birtar eru nektarmyndir af íslenskum stúlkum á erlendri vefsíðu. Yngstu stúlkurnar sem birtast þar eru fjórtan ára gamlar. Á síðunni skiptast notendur á myndum af íslenskum stúlkum og ræða saman um þær. Stúlkurnar eru í flestum tilfellum nafngreindar og sagt frá hvaða bæjarfélagi þær koma frá svo ekki fari á milli mála hverjar um ræðir. Sumir notendur síðunnar biðja einnig sérstaklega um myndir af tilteknum stúlkum, bæði nektarmyndir og myndir þar sem þær eru á sundfötum. Svo virðist sem þeir sjónum sínum að tilteknum stúlkum og reyni að safna eins mörgum myndum af þeim fáklæddum og kostur gefst. Virðast þeir sitja um þær á samfélagsmiðlum á borð við Instagram, Twitter og Facebook. Brotavilji þeirra virðist vera einbeittur en í umræðum á síðunni eru þeir oft minntir á að um lögbrot sé að ræða. Sumir notendur segjast nota svokallaða TOR-vafra sem gerir lögreglunni erfiðara að rekja slóð þeirra og hafa upp á þeim.Hrefna Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Heimilis og skóla.Óhugnanlegt mál Hrefna Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Heimilis og skóla segir málið óhugnanlegt og brýnir fyrir öllum að passa sig hvað þeir setja á netið. „Það er mikilvægt að það komi fram að skömmin er ekki þeirra sem eru á þessum myndum. Skömmin liggur hjá þeim sem dreifa þessum myndum. En við viljum samt brýna fyrir öllum að passa hvað þeir setja á netið,“ segir Hrefna. „Það eru ákveðin heilræði sem mikilvægt er að hafa i huga í sambandi við þessi mál. Til dæmis að setja ekki hvað sem er á netið. Hugsa sig alltaf tvisvar um áður en maður setur eitthvað inn,“ segir hún. Hún segir samræðu foreldra og barna vera mikilvæga þegar komi að netöryggi. „Í niðurstöðum kannanna sem við höfum verið að gera kemur í ljós að börn og unglingar eru að verða meðvitaðri um netöryggi. Við hvetjum foreldra til að fylgjast með og ræða þessi mál reglulega við börn sín. Við viljum líka að það komi fram að ef unglingar eru komnir í klípu á netinu, og eru hræddir við að ræða við að segja foreldrum sínum frá, geta þeir haft samband við Hjálparsíma Rauða krossins í síma 1717 og fengið aðstoð.“Gamlar myndir skjóta upp kollinum Hluti myndanna sem er í dreifingu á síðunni eru gamlar. Heimildir Vísis herma að einhverjar séu að verða áratugs gamlar. Þetta eru myndir sem hafa áður birst í sambærilegum málum. „Já, það eru dæmi um að ein lítil mistök elti stúlkur alla ævi,“ segir Hrefna. Hún segir því mikilvægt að passa hvað maður setur á netið – svona geti elt mann lengi. Hrefna minnir á netheilræði Heimilis og skóla og leggur áherslu á að boð og bönn séu ekki endilega svarið þegar komi að netöryggi, heldur að brýna rétt gildi fyrir börnum og hvetja þau til þess að hugsa sig tvisvar um áður en þau setja hluti á netið.
Tengdar fréttir Nektarmyndir af stúlkum á fermingaraldri á spjallsíðu Erlend spjallsíða hefur að geyma myndir af fáklæddum íslenskum stúlkum sem eru allt niður í fjórtán ára. Lögregla rannsakar málið og reynir að fá síðunni lokað. Alvarlegt brot gegn réttindum barns segir framkvæmdastjóri Barnaheilla. 15. apríl 2014 06:30 Mest lesið Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Fleiri fréttir Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sjá meira
Nektarmyndir af stúlkum á fermingaraldri á spjallsíðu Erlend spjallsíða hefur að geyma myndir af fáklæddum íslenskum stúlkum sem eru allt niður í fjórtán ára. Lögregla rannsakar málið og reynir að fá síðunni lokað. Alvarlegt brot gegn réttindum barns segir framkvæmdastjóri Barnaheilla. 15. apríl 2014 06:30