Körfubolti

NBA: Durant nálgast Jordan

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kevin Durant.
Kevin Durant. Mynd/AP
Kevin Durant skoraði 35 stig í sigri á Cleveland Cavaliers í NBA-deildinni í körfubolta í nótt og er farinn að nálgast 27 ára gamalt afrek Michael Jordan.

Oklahoma City Thunder vann þarna 102-95 útisigur á Cleveland Cavaliers en þetta var fimmtugasti sigurleikur liðsins á tímabilinu. Liðið lék án Russell Westbrook og KD var í basli í byrjun og klikkaði úr sex fyrstu skotunum sínum.

Durant, sem var með 11 fráköst og 6 stoðsendingar, komst á endanum í gang og fór yfir 25 stigin í 33. leiknum í röð en því hefur enginn náð síðan að Michael Jordan gerði það í 40 leikjum í röð 1986-87.

James Harden var með 28 stig og 8 stoðsendingar í 129-106 sigri Houston Rockets á Minnesota Timberwolves. Dwight Howard missti af öðrum leiknum í röð en það kom ekki að sök og Houston vann sinn sjöunda leik af síðustu tíu. Kevin Love skoraði 29 stig fyrir Minnesota og nýliðinn Gorgui Dieng var með 22 stig og 21 frákast.

Wesley Matthews skoraði 28 stig og Damian Lillard var með 23 stig og 11 stoðsendingar þegar Portland Trailblazers vann 116-103 heimasigur á Washington Wizards en Portland-liðið er enn án stjörnuleikmannsins LaMarcus Aldridge sem er meiddur. John Wall var með 24 stig og 14 stoðsendingar fyrir Washington.

Stephen Curry var með 31 stig og 11 stoðsendingar og Klay Thompson skoraði 29 stig þegar Golden State Warriors vann 115-110 sigur á Milwaukee Bucks. Golden State komst þar með 18 leikjum yfir 50 prósent sigurhlutfall í fyrsta sinn í 20 ár. David Lee var með 22 stig og 12 fráköst fyrir Golden State.

Úrslit í öllum leikjum NBA-deildarinnar í nótt:

Cleveland Cavaliers - Oklahoma City Thunder 95-102

Houston Rockets - Minnesota Timberwolves 129-106

Portland Trail Blazers - Washington Wizards 116-103

Golden State Warriors - Milwaukee Bucks 115-110

Staðan í NBA-deildinni:













NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×