Nýjar gervihnattamyndir sýna mögulegt flugvélabrak á floti Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 23. mars 2014 13:20 Frá leitinni í Indlandshafi. vísir/afp
Samgönguráðherra Malasíu greindi frá því í dag að frönsk stjórnvöld hefðu birt nýjar gervihnattarmyndir sem sýndu eitthvað sem gæti verið flugvélabrak á floti í suðurhluta Indlandshafi. Þar fer nú fram umfangsmikil leit af malasísku farþegaflugvélinni sem hvarf með 239 manns innanborðs fyrir rúmum hálfum mánuði. Átta leitarflugvélar, búnar öflugum leitarbúnaði, voru sendar af stað í morgun til viðbótar þeim sem þegar fljúga yfir leitarsvæðinu. Tony Abbott, forsætisráðherra Ástralíu, sagði í morgun að aukin von væri um að hægt yrði að komast að örlögum flugvélarinnar vegna gervihnattamyndanna. Þá komu leitarmenn í einni af flugvélunum auga á fljótandi hluti í dag, þar á meðal trébretti. Abbott segir þetta vera í fyrsta sinn sem leitarmenn sjái með berum augum hluti í hafinu á leitarsvæðinu. Ekki er ljóst að svo stöddu hvort hlutirnir séu þeir sömu og gervihnattarmyndir hafa sýnt. Malasísk stjórnvöld telja að flugvélinni MH360 hafi vísvitandi verið snúið af leið. Ef hlutirnir sem sést hafa á gervihnattamyndum síðustu daga reynast vera brak flugvélarinnar, bendir allt til þess að það sé raunin, þar sem svæðið er langt frá áætlaðri flugleið vélarinnar - sem fór frá Kúala Lúmpúr áleiðis til Peking þegar hún hvarf.
Flugvélahvarf MH370 Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Fleiri fréttir Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Sjá meira