Körfubolti

NBA í nótt: Indiana vann uppgjörið gegn Miami

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Tvö bestu lið austurdeildarinnar mættust í NBA-deildinni í nótt og hafði Indiana Pacers betur gegn meisturum Miami Heat, 84-83.

Indiana, sem hafði tapað tveimur leikjum í röð, var mest sjö stigum undir í fjórða leikhluta en sneri svo leiknum sér í vil á lokakaflanum.

Miami fékk þó tækifæri til að klára leikinn. LeBron James, sem skoraði 38 stig, klikkaði á þristi þegar lítið var eftir og Chris Bosh fékk tækifæri til að tryggja Miami sigurinn með flautukörfu en skot hans geigaði einnig.

Indiana er nú eftur komið með fjögurra sigurleikja forystu á Miami á toppi austurdeildarinnar en þessi tvö lið hafa afgerandi forystu á önnur.

Paul George skoraði 23 stig fyrir Indiana og Roy Hibbert 21.



San Antonio er þó með bestan árangur allra liða í NBA-deildinni en liðið trónir á toppnum í vestrinum. Spurs vann í nótt sigur á Denver, 108-103.

Tim Duncan var með 29 stig, þrettán fráköst og fimm stoðsendingar í leiknum en þetta var fimmtándi sigur San Antonio í röð.



Það ríkir svo mikil spenna í baráttunni um síðustu sætin í úrslitakeppninni austanmegin. New York færðist enn nær Atlanta, sem er í áttunda sætinu, með sigri á Sacramento í nótt, 107-99.

Carmelo Anthony skoraði 36 stig fyrir Knicks og JR Smith bætti við 29. Liðið sneri þar með blaðinu eftir slæmt tap gegn LA Lakers í fyrrinótt.

Atlanta tapaði að sama skapi fyrir Minnesota, 107-83, og þar með sínum fjórða leik í röð. Paul Millsap var stigahæstur í liði Atlanta með tólf stig en Jeff Teague náði sér engan veginn á strik og klikkaði á öllum fimm skotum sínum í leiknum. Hann var þar með stigalaus í fyrsta sinn í vetur.

Memphis og Phoenix unnu svo bæði leiki sína í nótt en spennan um sæti í úrslitakeppninni er líka mikil vestanmegin.

Úrslit næturinnar:

Charlotte - Brooklyn 116-111

Washington - Phoenix 93-99

Boston - Toronto 90-99

Detroit - Cleveland 96-97

Minnesota - Atlanta 107-83

New Orleans - LA Clippers 98-96

Indiana - Miami 84-83

San Antonio - Denver 108-103

Sacramento - New York 99-107

Utah - Memphis 87-91

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×