Körfubolti

Collins framlengir við Nets

Jason Collins.
Jason Collins. vísir/getty
Umtalaðasti íþróttamaður Bandaríkjanna þessa dagana, Jason Collins, mun skrifa undir nýjan samning við Brooklyn Nets í dag.

Hann skrifaði upprunalega undir tíu daga samning við Nets og sá samningur rann út í gær. Hann mun skrifa undir nýjan tíu daga samning og svo tekur við samningur út leiktíðina.

Hann lék sinn fyrsta heimaleik fyrir Nets í gær og stóðu áhorfendur upp fyrir Collins og kölluðu nafn hans. Hann er fyrsti homminn í NBA-deildinni sem hefur komið út úr skápnum meðan hann er enn að spila.

"Þetta var svalt. Það var virkilega gaman að fá þessar móttökur en mikilvægast var að vinna leikinn," sagði Collins.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×