Körfubolti

Skoraði þriggja stiga körfu 127 leiki í röð

Korver var eðlilega ekki ánægður.
Korver var eðlilega ekki ánægður. vísir/getty
Allt tekur enda og það fékk Kyle Korver, leikmaður Atlanta Hawks, að reyna í nótt er honum tókst ekki að skora þriggja stiga körfu í ansi langan tíma.

Korver var búinn að skora að minnsta kosti eina þriggja stiga körfu í 127 leikjum í röð. Hann klúðraði sínum fimm tilraunum í nótt og NBA-metið stendur því í 127 að sinni.

Indiana steinlá síðan gegn Charlotte en það kom verulega á óvart. Indiana komst engu að síður inn í úrslitakeppnina í nótt.

Úrslit:

Charlotte-Indiana  109-87

Orlando-Houston  89-101

Washington-Utah  104-91

Boston-Golden State  88-108

Brooklyn-Memphis  103-94

Detroit-Chicago  94-105

Milwaukee-Sacramento  102-116

Minnesota-NY Knicks  106-118

Denver-Dallas  115-110

Portland-Atlanta  102-78

Staðan í NBA-deildinni.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×