Sverre: Kannski óþarfi að fá rautt í hverjum leik Henry Birgir Gunnarsson í Álaborg skrifar 12. janúar 2014 18:03 Sverre fær sér sæti í stúkunni eftir að hafa fengið að líta rauða spjaldið. mynd/daníel "
Sá rauði segir bara fínt. Rauða spjaldið var í stíl við búninginn," sagði varnartröllið Sverre Andreas Jakobsson brosmildur að venju eftir sigurinn á Noregi. Sverre var vikið þrisvar sinnum af velli og fékk því að líta rauða spjaldið er þrettán mínútur lifðu leiks. "Ég er mjög glaður. Mér fannst við leggja línurnar strax í byrjun. Margir hafa efast um varnarleikinn okkar en við sýndum strax í upphafi að við vorum allavega komnir til þess að berjast og gefa allt í þetta. "Persónulega hafði ég engar áhyggjur af varnarleiknum fyrir mót en þessi gagnrýni vill oft skjóta upp kollinum fyrir stórmót. Ég skil það líka vel. Þá er það okkar að svara. Það kveikir í okkur og hvetur okkur áfram þegar við erum gagnrýndir. Það er bara vel þegið að sem flestir gagnrýni okkur," sagði Sverre og hló dátt. "Við fengum Bjögga með okkur og þetta gekk allt vel. Auðvitað misstum við aðeins dampinn í síðari hálfleik en það er eins og gengur. Byrjunin lagði grunninn að sigrinum. "Geðveikin var í gangi og betra að klára þetta á fullu en að vera í einhverjum dúkkulísuleik. Það er kannski óþarfi að fá rautt spjald í hverjum leik en maður gengur eins langt og má."
EM 2014 karla Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Fótbolti Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Körfubolti Fimmtán leikmenn meiddir: Er lengra landsleikjahlé betra eða verra? Sport Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ Fótbolti Fleiri fréttir „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Sjá meira