Handbolti

Guðjón Valur næst markahæstur á EM

Stefán Árni Pálsson skrifar
Guðjón Valur í leiknum gegn Ungverjum í gær.
Guðjón Valur í leiknum gegn Ungverjum í gær. mynd / daníel
Guðjón Valur Sigurðsson, fyrirliði íslenska landsliðsins, er næst markahæsti leikmaður Evrópumótsins í handknattleik sem fram fer í Danmörku um þessar mundir.

Kiril Lazarov, leikmaður Makedóníu, er markahæstur og hefur hann gert 19 mörk á mótinu en Lazarov skoraði 12 mörk í jafntefli gegn Tékkum í gær.

Guðjón Valur hefur skorað 14 mörk á mótinu og þeir Pavel Horak, frá Tékklandi og Victor Tomas, frá Spáni, hafa báðir gert 13 mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×