Frakkar sendu Serba heim - Pólverjar og Rússar áfram Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. janúar 2014 21:15 Nikola Karabatic. Mynd/AFP
Frakkland fer með fullt hús inn í milliriðil tvö eftir þriggja marka sigur á Serbum í kvöld, 31-28, í lokaleik C-riðils á Evrópumótinu í handbolta í Danmörku. Serbar eru aftur á móti á heimleið eftir riðlakeppnina aðeins tveimur árum eftir að þeir fóru alla leið í úrslitaleik EM. Serbar urðu að ná í stig til þess að komast upp úr riðlinum en sitja nú eftir á minnsta mun. Pólland, Rússland og Serbía eru öll með tvö stig en Serbarnir eru með lakasta árangurinn í innbyrðisleikjum þessara þriggja liða og eru því á heimleið. Pólverjar töpuðu tveimur fyrstu leikjum sínum með eins marks mun en liðið fer með tvö stig inn í milliriðilinn eftir magnaðan endurkomusigur á Rússum fyrr í dag. Sigur Frakkar var öruggur og Serbarnir gerðu sig aldrei líklega til að ná einhverju út úr þessum leik í kvöld. Frakkar komust í 6-1 og voru 17-12 yfir í hálfleik. Frakkar náðu mest átta marka forskoti í seinni hálfleiknum en Serbar löguðu aðeins stöðuna undir lokin. Hvít-Rússar tryggðu sér sæti í milliriðlinum með 29-23 sigri á Svartfjallalandi en staðan var 13-13 í hálfleik.Liðin í milliriðli tvö: Króatía 4 stig (+12) Frakkland 4 stig (+8) Svíþjóð 2 stig (+7) Pólland 2 stig (+1) Rússland 0 stig (-9) Hvíta-Rússland 0 stig (-19)
EM 2014 karla Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Fleiri fréttir „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sjá meira