Heimsmeistararnir á góðu róli stuttu fyrir mót 5. janúar 2014 16:20 Spænska landsliðið Mynd/AFP Images
Spánverjar áttu ekki í vandræðum í leik sínum gegn sænska landsliðinu í síðasta æfingarleik liðsins fyrir Evrópumótið í handbolta sem fer fram í Danmörku. Jafnræði var með liðunum framan af og var staðan 8-8 þegar tíu mínútur voru til hálfleiks en þá setti spænska liðið í lás og breytti stöðunni í 17-9 fyrir hálfleikinn. Eftir það var sigurinn ekki í hættu og héldu Spánverjar öruggu forskoti það sem eftir lifði leiks og unnu að lokum öruggan sigur, 28-22. Spánverjar unnu alla þrjá leiki sína á æfingarmótinu sem fór fram á Spáni og koma því á góðu skriði inn í Evrópumótið þrátt fyrir að hafa misst Alex Dujshebaev í meiðsli stuttu fyrir mót. Ungverjar töpuðu fyrir Pólverjum í síðasta æfingarleik sínum fyrir mótið með sjö mörkum. Ungverjar sem tóku þátt í æfingarmótinu með Pólverjum, Tékkum og Hvít-Rússum unnu aðeins einn leik af þremur og ættu því ekki að vera með mikið sjálfstraust fyrir leikina sem eru framundan. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en pólska liðið jók smátt og smátt muninn í seinni hálfleik og vann að lokum öruggan sigur. Það er því ljóst að liðin sem eru með Íslandi í riðli á Evrópumótinu koma í misgóðu standi inn í mótið en síðasta lið riðilsins, Noregur tapaði óvænt gegn Katar í dag.
EM 2014 karla Mest lesið Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Enski boltinn Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Körfubolti Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Körfubolti Eiríkur nýr þjálfari Vals Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sjá meira