Körfubolti

Aðeins heimskingjar afskrifa mig

Margir efast um hvort Kobe Bryant nái því aftur að verða einn besti leikmaður NBA-deildarinnar. Hann var nýbyrjaður að spila eftir langa fjarveru er hann meiddist aftur.

Hann verður frá í sex vikur vegna meiðslanna og viðurkenndi að hafa verið heppinn að meiðast ekki verr. Hann er þó ekki af baki dottinn.

"Aðeins heimskingjum dettur í hug að afskrifa mig," sagði hinn 35 ára gamli Bryant sem ætlar að halda áfram að leggja hart að sér.

Hann er nýbúinn að skrifa undir risasamning við Lakers og því er ætlast til að hann skili sínu og rúmlega það.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×