Körfubolti

Paul sá fyrir sigrinum | Sigurganga Oklahoma á enda

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Chris Paul í eldlínunni í nótt.
Chris Paul í eldlínunni í nótt. Nordicphotos/Getty
Chris Paul skoraði úr fimm vítaskotum á síðustu tuttugu sekúndum framlengingar í sigri Los Angeles Clippers á Minnesota Timberwolves í NBA-deildinni í nótt.

Paul lauk leik með 19 stig og 13 stoðsendingar í 120-116 sigri. Blake Griffin fór fyrir Clippers með 32 stig, 10 fráköst og fjóra stolna bolta. Maður leiksins var þó Kevin Love hjá Timberwolves með 45 stig og 19 fráköst.

Oklahoma tapaði sínum fyrsta heimaleik á tímabilinu þegar Toronto Raptors kom í heimsókn. Kyle Lowry setti 22 stig en tapið var það fyrsta í níu leikjum hjá Oklahoma.

Þá vann Indiana Pacers 106-79 sigur á Boston Celtics.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×