Fótbolti

Robben ætlar að framlengja við Bayern

Arjen Robben.
Arjen Robben.
Ein af stjörnum hins magnaða liðs Bayern München, Arjen Robben, segist eiga þrjú góð ár eftir í boltanum og hann vill eyða þeim hjá Bayern.

Robben hefur verið í herbúðum Bayern síðan 2009 og mun fljótlega eftir áramót hefja samningaviðræður um nýjan samning við þýska félagið.

"Félagið veit hvað það fær hjá mér og öfugt," sagði Robben en núverandi samningur hans rennur út sumarið 2015.

"Mér líður eins og ég geti spilað á toppnum í þrjú ár í viðbót. Ég elska lífið hérna og vil vera hér áfram."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×