Fótbolti

Thiago sér ekki eftir því að hafa farið til Bayern

Thiago ásamt unnustu sinni á Oktoberfest.
Thiago ásamt unnustu sinni á Oktoberfest.
Spænska ungstirnið Thiago Alcantara var einn eftirsóttasti bitinn á leikmannamarkaðnum síðasta sumar. Hann ákvað á endanum að fara til Bayern München frá Barcelona.

Lengi vel leit út fyrir að hann væri á förum til Man. Utd en að lokum ákvað hann að elta Pep Guardiola til Bayern.

"Það var besta ákvörðun sem ég hef tekið í lífinu. Ég er afar hamingjusamur hérna," sagði hinn 22 ára gamli Thiago.

"Ég þekkti þjálfarann og liðið er mjög sterkt. Þess vegna ákvað ég að koma. Ég hef þekkt Guardiola síðan ég var 18 ára og hann hefur kennt mér mjög mikið.

"Þegar við blöndum kröftugum stíl Þjóðverja við leikstíl Pep þá verður útkoman sterk og góð."

Strákurinn hefur verið meiddur upp á síðkastið en er klár í slaginn á nýjan leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×