Körfubolti

Jón Arnór og félagar töpuðu í Róm

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mynd/Ramon Cortez
CAI Zaragoza tapaði 83-81 í Evrópubikarnum í körfubolta í kvöld. Spænska liðið situr í 3. sæti í D-riðli fyrir lokaumferðina.

Jón Arnór Stefánsson spilaði í rúmar tólf mínútur í tveggja stiga tapi spænska liðsins í Róm. Landsliðsmaðurinn tók tvö skot sem rötuðu ekki rétt leið en gaf tvær stoðsendingar auk þess að taka fjögur fráköst.

CAI Zaragoza tekur á móti Gravelines Dunkerque í lokaumferðinni þann 18. desember. Þrjú efstu liðin í riðlinum komast áfram í keppninni.

Tölfræðina úr leiknum í kvöld má sjá hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×