Körfubolti

Jón Arnór á leið í aðgerð | Frá í þrjár vikur

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
MYND/ANTON
Jón Arnór Stefánsson er á leið í aðgerð á hné og verður ekki með liði sínu CAI Zaragoza næstu þrjár vikurnar en hann lék ekki með liðinu í dag þegar það tapaði fyrir Herbalife GC 58-55.

Óþægindi í hné hafa trufað Jón Arnór að undanförnu en hann fór mjög vel af stað með CAI Zaragoza á tímabilinu. Liðið hefur unnið 5 af tíu leikjum sínum og er um miðja deild.

Hörður Axel Vilhjálmsson náði ekki að skora fyrir botnið Valladolid sem steinlá 109-50 gegn Barcelona í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×