Aron: Þessi meiðsli ógna ferli Alexanders Henry Birgir Gunnarsson skrifar 17. desember 2013 13:04 Alexander Petersson. vísir/vilhelm "
Hann getur ekki verið með vegna meiðsla. Hann segist ekki þola álagið sem fylgi því að spila á stórmóti miðað við standið á honum í dag," segir Aron Kristjánsson, landsliðsþjálfari í handbolta, um Alexander Petersson en hann tilkynnti í dag að hann myndi ekki spila með landsliðinu á EM í janúar. Alexander hefur verið að glíma við þrálát meiðsli í öxl í lengri tíma og missti af HM fyrir um ári síðan vegna sömu meiðsla. Þá ætlaði hann sér að koma sterkari að ári en það gekk ekki eftir. "Hann spilar með liðinu en æfir lítið. Hann hefur til að mynda ekkert æft síðan hann spilaði um helgina." Alexander getur spilað með liði sínu Löwen en treystir sér ekki í þau átök sem fylgja stórmóti. Var ekkert rætt að hann kæmi með og reyndi að hjálpa til eins og hann gæti? "Við ræddum um þann möguleika en hann vildi annað hvort vera með á fullu eða ekki," segir Aron en er hann sáttur við þessa niðurstöðu? "Hann er að glíma við erfið meiðsli sem ógna hans ferli. Þetta er orðið langt ferli hjá honum og spurning hvort það hefði ekki mátt gera þetta öðruvísi? Manni hefur stundum fundist hann vera að spila mikið miðað við stöðuna á sér. Sérstaklega í fyrra. Þetta er samt alltaf ákvarðanataka og erfitt að segja hvort hlutirnir hefðu verið öðruvísi ef þetta hefði verið gert á annan hátt. Það sem þó hefur verið gert virðist ekki vera að skila tilætluðum árangri enda hefur hann verið að glíma við þessi meiðsli lengi." Þá standa eftir í vinstri skyttustöðunni þeir Rúnar Kárason og Ásgeir Örn Hallgrímsson. Þeir þurfa að fylla stórt skarð sem Alexander skilur eftir sig. "Þetta er mikið áfall fyrir okkur og segir líka ýmislegt um hans alvarlegu stöðu. Hann er að berjast fyrir sínum ferli."
EM 2014 karla Olís-deild karla Mest lesið Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Fótbolti „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Fótbolti Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti Fleiri fréttir Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sjá meira