Hannes búinn að skrifa undir hjá Sandnes Ulf Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. desember 2013 14:30 Hannes fagnar Íslandsmeistaratitlinum með KR. Mynd/Daníel
Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson er nýjasti atvinnumaður Íslands en hann skrifaði í dag undir samning við norska úrvalsdeildarliðið Sandnes Ulf. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Hannes Þór er 29 ára gamall og hefur tvisvar sinnum fagnað Íslandsmeistaratitlinum með KR á síðustu þremur tímabilum. Hann hefur verið fastamaður í marki íslenska landsliðsins síðan að Lars Lagerbäck tók við. „Við erum mjög ánægðir með að fá svona öflugan leikmann til okkar. Við höfum fylgst vel með íslenska markaðnum og Hannes æfði líka með okkur í október," sagði Tom Rune Espedal, framkvæmdastjóri Sandnes Ulf. „Við erum að fá til okkar reyndan markvörð sem hefur spilað með toppliði á Íslandi og er kominn með alþjóðlega reynslu. Þegar ég sá hann fékk ég það strax á tilfinninguna að hann væri sigurvegari," sagði Espedal. „Hannes hélt íslenska landsliðinu inn í umspilsleikjunum á móti Króatíu og varði oft frábærlega í leikjunum,. Hann er stór og sterkur markvörður sem er góður í stóru leikjunum. Hann er líka mjög einbeittur og ábyrgur markvörður," sagði Espedal. „Þetta eru stór félagsskipti fyrir félag eins og Sandnes Ulf og sýnir að félagið ætlar sér stærri hluti í næstu framtíð," sagði Espedal en Sandnes Ulf var nýliði í norsku úrvalsdeildinni í sumar og hélt sér uppi. Sandnes Ulf verður því áfram Íslendingalið en Steinþór Freyr Þorsteinsson hætti hjá liðinu eftir tímabilið. Með liðinu spilar hinsvegar Steven Lennon sem gerði garðinn frægan hjá Fram í nokkur ár.Mynd/Heimasíða Sandnes Ulf
Fótbolti Fótbolti á Norðurlöndum Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Fótbolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira