Fótbolti

Robben sá um sína | Úrslitin í þýska

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Arjen Robben fagnar öðru marka sinna í dag.
Arjen Robben fagnar öðru marka sinna í dag. Nordicphotos/Getty
Hollendingurinn Arjen Robben skoraði bæði mörk Bayern München í 2-0 sigri á Eintracht Braunschweig í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Robben skoraði bæði mörkin fyrir Bæjara í fyrri hálfleik en meistararnir hafa áfram fjögurra stiga forskot á Bayer Leverkusen á toppi deildarinnar.

Bayer vann öruggan 3-0 sigur á Nürnberg þar sem Heung-Min SOn skoraði tvö mörk og Stefan Kiessling eitt. Dortmund er í þriðja sæti, sjö stigum á eftir Bæjurum, eftir 3-1 útisigur á Mainz. Robert Lewandowski tryggði gestunum sigur með tveimur mörkum úr vítaspyrnu seint í leiknum.

Úrslit dagsins

Bayern München 2-0 Eintracht Braunschweig

Bayer Leverkusen 3-0 Nürnberg

Hoffenheim 4-4 Werder Bremen

Hertha Berlín 0-0 Augsburg

Mainz 05 1-2 Dortmund




Fleiri fréttir

Sjá meira


×