Körfubolti

Kobe missti af æfingu í gær

Kobe Bryant.
Kobe Bryant.
Eins og áður hefur komið fram stefnir Kobe Bryant að því að spila með Lakers fyrir lok mánaðarins. Það gæti verið of mikil bjartsýni hjá leikmanninum.

Hann sleppti í gær æfingu til þess að fara í meðferð. Það er fyrsta æfingin sem hann sleppir síðan hann byrjaði að æfa aftur eftir sjö mánaða fjarveru.

„Hann átti tvo erfiða daga og tók einn dag í frí. Þetta er ekkert mál né eitthvað til þess að hafa áhyggjur af," sagði Mike D'Antoni, þjálfari Lakers.

Bryant var aðeins aumur eins og eðlilegt er hjá leikmanni sem er að koma til baka eftir langa fjarveru.

„Þetta var eingöngu varúðarráðstöfun. Við munum samt ekki hleypa honum of snemma út á völlinn. Hann spilar þegar hann hefur náð fullri heilsu."

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×