Sport

Anton Sveinn í 26. sæti

Stefán Árni Pálsson skrifar
Anton Sveinn McKee. - MYND/BENEDIKT ÆGISSON
Sundkappinn Anton Sveinn Mckee lauk 400 metra fjórsundi í 26. sæti af 39 keppendum á heimsmeistaramótinu í sundi sem fram fer þessa dagana í Barcelona og Spáni.

Anton kom í mark á tímanum 4:23,99 eða aðeins 0,32 sekúndum frá Íslandsmetinu sem er reyndar í hans eigu.

Þar með hafa Íslendingar lokið þátttöku sinni á heimsmeistaramótinu í Barcelona árið 2013.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×