Körfubolti

Pavel ekki áfram hjá Norrköping

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Anton
Forráðamenn sænska úrvalsdeildarfélagsins Norrköping Dolphins segjast ekki hafa efni á því að halda Pavel Ermolinskij í sínum röðum á næsta tímabili.

Sport.is greindi frá þessu í morgun og vísaði í sænska fjölmiðla. Þar segir Paul Burke, þjálfari liðsins, að hann reikni ekki með honum á næsta tímabili.

„Þriðja árið í röð þurfum við að skera niður í rekstrinum. Pavel er of dýr. Við höfum ekki efni á að halda honum,“ sagði Burke í samtali við Folkbladet í Svíþjóð.

„Það er ekkert ákveðið en við ætlum að reyna að fá nýtt blóð í félagið. Ný andlit og nýjan kraft.“

Ekki náðist í Pavel við vinnslu fréttarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×