Anna María var búin að eiga metið frá því áður en Helena fæddist Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. júní 2013 11:53 Helena Sverrisdóttir og Anna María Sveinsdóttir. Mynd/KKÍ
Helena Sverrisdóttir bætti í dag stigamet íslenska kvennalandsliðsins í körfubolta og er nú orðin sú körfuknattleikskona sem hefur skorað flest stig fyrir A-landsliðið. Anna María bætti met Önnu Maríu Sveinsdóttur í lokaleik íslenska liðsins á Smáþjóðaleikunum í Lúxemborg. Anna María Sveinsdóttir skoraði á sínum tíma 759 stig í 60 landsleikjum eða 12,7 stig að meðaltali í leik. Helena Sverrisdóttir var búin að leika 44 leiki fyrir þennan leik í dag og vantaði bara eitt stig til að jafna metið. Helena var ekki lengi að bæta metið því hún var komin á vítalínuna eftir aðeins 23 sekúnda leik og setti þar niður bæði vítin sín. Helena var þar með orðin stigahæsta landsliðskonan Íslands frá upphafi. Leikur Íslands og Lúxemborgar stendur nú yfir og er hægt að nálgast lifandi tölfræði hans hér. Anna María var búin að eiga stigamet landsliðsins síðan árið 1987 eða áður en Helena fæddist (Helena fæddist 1988). Anna María var aðeins á átjánda aldursári þegar hún varð fyrst stigahæsta landsliðskona Íslands frá upphafi. Anna María var fyrst til að skora 100, 200, 300, 400, 500, 600 og 700 stig fyrir íslenska landsliðið en Helenu nálgast óðum 800 stiga múrinn. Anna María er jafnframt búin að missa tvö stigamet á aðeins 66 dögum því Birna Valgarðsdóttir tók af henni stigametið í efstu deild í lokaumferðinni sem fram fór 27. mars síðastliðinn. Anna María skoraði 5001 stig í efstu deild en Birna endaði tímabilið með 5006 stig.
Körfubolti Íslenski körfuboltinn Mest lesið Stríðinn hrafn fluttur á Laugardalsvöll Fótbolti Þeir bestu (25.-21. sæti): Kolbeinn kafteinn, raðsigurvegarinn í markinu, Blikahetjur og þrumuskot suður með sjó Íslenski boltinn Fegin að vera komin heim: „Þetta endaði ekkert vel“ Íslenski boltinn Ronaldo langtekjuhæsti íþróttamaður heims Fótbolti Áhorfandi hljóp inn á og réðist á fyrrverandi leikmann Vals Fótbolti Fjórtán slösuðust þegar ekið var á áhorfendur Fótbolti Hörður kominn undan feldinum Körfubolti Ólympíumeistarinn hallar sér að Jesú og fjölskyldunni í kjölfar handtöku Sport Vonast til að Man United sé tilbúið að selja sig á tæplega sjö milljarða króna Enski boltinn Barcelona Spánarmeistari Fótbolti Fleiri fréttir Friðrik Ingi hættur með Hauka Hörður kominn undan feldinum Harkaði af sér veikindi og Nuggets tryggðu oddaleik Úlfarnir í úrslit vestursins Fékk að mæta aðeins seinna í vinnu eftir Íslandsmeistara fögnuð „Menn vissu bara upp á sig sökina“ „Þegar þeir eru orðnir þreyttir hinum megin þá erum við með eitt stykki Basile“ Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Lovísa samskiptastjóri, „mini-mes“ og ástæðan fyrir engum leikhléum Vonast til að Giannis standist freistinguna og klári ferilinn hjá Milwaukee Stólarnir klárir og vita hvað fór úrskeiðis í leik tvö: „Við misstum hausinn“ „Einhvers staðar er skemmt epli ef niðurstaða þingsins var svona afdráttarlaus“ Aftur í Síkið: „Held að menn séu búnir að grafa þetta“ Slógu toppliðið út og komust í austur úrslitin annað árið í röð Myndaveisla: Haukar Íslandsmeistarar eftir ótrúlegan oddaleik „Að lokum var það betra liðið sem vann“ „Við ætluðum ekki að tapa þremur leikjum í röð“ Tatum með slitna hásin Uppgjörið: Haukar - Njarðvík 92-91 | Haukar Íslandsmeistarar 2025 Sjáðu stemmningsmyndbandið fyrir oddaleikinn „Mætum óttalaus“ Settu nýtt met í heppni og fá velja fyrstir Meistararnir á bjargbrún og langri bið Knicks að ljúka Þriggja ára reglan heyrir sögunni til Steinar Kaldal: Ótrúleg tilfinning Hinn skapheiti Agravanis missir af næsta leik úrslitaeinvígisins Uppgjörið: Ármann - Hamar 91-85 | Ármann leikur í Bónus deildinni á næstu leiktíð Lögmálið: „Er eitthvað að því að Randle sé búinn að vera betri en Ant?“ Indiana tók Cleveland í bakaríið „Pabbi og mamma Milka, Hesseldal, Basile og Dinkins hljóta að koma sterk inn í haust“ Sjá meira
Þeir bestu (25.-21. sæti): Kolbeinn kafteinn, raðsigurvegarinn í markinu, Blikahetjur og þrumuskot suður með sjó Íslenski boltinn
Þeir bestu (25.-21. sæti): Kolbeinn kafteinn, raðsigurvegarinn í markinu, Blikahetjur og þrumuskot suður með sjó Íslenski boltinn