Körfubolti

Stórt tap og Jón Arnór stigalaus

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
MYND/RAMÓN CORTÉS WWW.CAISTAS.NET

CAI Zaragoza fékk slæman skell í öðrum leiknum gegn Real Madrid í undanúrslitum úrslitakeppni spænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta.

Jón Arnór og félagar hans í Zaragoza sáu aldrei til sólar og töpuðu, 93-65. Real Madrid leiðir í rimmunni og þarf einn sigur til viðbótar til að komast í lokaúrslitin.

Jón Arnór náði ekki að skora í dag en hann tók fjögur fráköst og gaf eina stoðsendingu. Hann spilaði að venju stórt hlutverk í varnarleik liðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×