Körfubolti

Logi verður ekki áfram hjá Angers

Logi Gunnarsson.
Logi Gunnarsson.

Landsliðsmaðurinn Logi Gunnarsson mun ekki spila áfram með franska félaginu Angers þar sem hann spilaði í vetur.

Logi staðfestir þetta við vefsíðunni karfan.is í dag.

"Það er eingöngu einn Evrópumaður í hverju liði leyfður hér þannig að það eru ekki mörg sæti í boði í deildinni, en það kemur bara í ljós á næstu vikum hvort ég fæ eitthvað hér í Frakklandi sem henta mér og fjölskyldunni," sagði Logi við karfan.is.

Hann spilaði vel í vetur og var með rúmlega tólf stig að meðaltali í leik.

Lesa má viðtalið við Loga í heild sinni hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×