Körfubolti

Hægt að sjá Jón Arnór spila gegn Real Madrid

Jón Arnór og félagar fagna eftir leik í gær.
Jón Arnór og félagar fagna eftir leik í gær. mynd/facebooksíða cai zaragoza

Ferðaskrifstofan Gaman Ferðir hefur ákveðið að bjóða upp á ferð til Madrid þar sem hægt verður að sjá Jón Arnór Stefánsson spila gegn Real Madrid um næstu helgi.

Lið Jóns, CAI Zaragoza, tryggði sér í gær farseðilinn í undanúrslit spænsku deildarinnar, sem er sú sterkasta í Evrópu, og þar bíður stórlið Real Madrid.

Farið verður út föstudaginn 31. maí og komið til baka á sunnudagskvöldið. Leikurinn sjálfur fer fram á laugardeginum.

Þeir sem hafa áhuga á að fara þurfa að hafa hraðar hendur því aðeins verður hægt að kaupa sig í ferðina fram að hádegi á morgun.

Ferðin kostar 149.900 kr. á mann miðað við tvo í herbergi. Innifalið í pakkanum er flug til London með WOW air og flug áfram til Madrid með Easy Jet og að sjálfsögðu til baka aftur. Gisting í 2 nætur á Holiday Inn hóteli miðsvæðis í Madrid og miði á leikinn.

Frekari upplýsingar er hægt að fá á netfanginu bragi@gaman.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×