Körfubolti

Flottur sigur á Möltu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Stelpurnar í höllinni í Lúxemborg í dag.
Stelpurnar í höllinni í Lúxemborg í dag. Mynd/KKÍ

Kvennalandsliðið í körfubolta vann Möltu 77-59 í fyrsta leik sínum á Smáþjóðaleikunum.

Malta sigraði á síðustu leikum og er þessi sigur því ansi sterkur í komandi baráttu um sigur á leikunum. Það tók stelpurnar smá tíma að komast inn í leikinn undir lok 1. leikhluta náðu þær tökunum og héldu þeim til leiksloka.

Helena og Kristrún leiddu liðið áfram en allar stelpurnar spiluðu vel og var varnarleikurinn til fyrirmyndar. Mikil barátta og góð liðsheild skilaði þessum flotta sigri.

„Þetta var frábær sigur og vörnin var traust. Í sókninni vorum við að opna mennina og náðum þannig að spila vel saman og fengum auðveldar körfur. Allir sem komu inná voru með frábæra baráttu sama hvort það voru leikreyndu leikmennirnir eða nýliðarnir,“ sagði Helena Sverrisdóttir í leikslok.

Hildur Björg hafði þetta að segja í lok leiks:

„Það er ótrúleg stemning í liðinu og þetta er með því skemmtilegra sem ég hef gert. Sjálfstraustið er í botni eftir þennnan sigur og við ætlum svo sannarlega að sigra þessa leika.“

Nýliðarnir Hildur Björg Kjartansdóttir, Ingunn Embla Kristínardóttir, Sara Rún Hinriksdóttir og Hallveig Jónsdóttir spiluðu allar í sínum  fyrsta A-landsleik. 

Næsti leikur stelpnanna er við Kýpur á föstudaginn kl.14:00 að íslenskum tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×