Körfubolti

Pavel mætir Hlyni og Jakobi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Valli
Það verður Íslendingaslagur í undanúrslitum sænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta eftir sigur Norrköping Dolphins á Borås Basket í kvöld.

Pavel Ermolinskij leikur með Norrköping sem hafði betur gegn Borås fyrstu umferð úrslitakeppninnar, 3-1, eftir ellefu stiga sigur í fjórða leik liðanna í rimmunni í kvöld, 74-63.

Pavel skoraði aðeins tvö stig í kvöld en lék í rúma 31 mínútu og tók á þeim tíma átta fráköst auk þess að gefa sjö stoðsendingar. Pavel hitti úr einu af sjö skotum sínum í leiknum.

Hlynur Bæringsson og Jakob Örn Sigurðsson leika með deildarmeisturum Sundsvall Dragons sem hafði betur gegn 08 Basket í 8-liða úrslitunum. Norrköping endaði í fjórða sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×