Körfubolti

Axel nálægt tvennunni í sigri Værloese

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Axel Kárason.
Axel Kárason. Mynd/Heimasíða BC Aarhus
Axel Kárason og félagar hans í Værloese BBK styrktu stöðu sína í 8. sæti dönsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta eftir fimmtán stiga sigur á botnliði Aalborg Vikings í kvöld, 88-73.

Axel Kárason var með 9 stig, 9 fráköst og 3 stoðsendingar í leiknum en hann hitti úr 4 af 7 skotum sínum.

Værloese BBK vann þarna sinn fimmta sigur í sjö leikjum á árinu 2013 er nú komið með sex stiga forskot á BC Aarhus sem er í sætinu fyrir neðan.

Axel var rólegur í fyrri hálfeik, nýtti bæði skotin sín og var með 4 stig, 4 fráköst og 2 stoðsendingar en Værloese var sextán stigum yfir í hálfleik, 56-40.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×