Körfubolti

Frábær sigur hjá Helenu og félögum

Helena Sverrisdóttir og stöllur hennar í Good Angels Kosice eru komnar áfram í Evrópudeildinni eftir flottan þriggja stiga sigur, 66-63, á Fenerbahce í kvöld.

Helena lék í 20 mínútur í kvöld. Skoraði 8 stig, tók 5 fráköst og gaf 2 stoðsendingar.

Þetta var uppgjör toppliðanna í riðlinum en þau voru jöfn að stigum fyrir leikinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×