Handbolti

40 íslensk stig í sigurleik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Valli
Sundsvall Dragons vann góðan sigur á Solna Vikings í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld, 101-87.

Jakob Sigurðarson var annar stigahæstu leikmanna Sundsvall með 23 stig en hann tók þar að auki fimm fráköst og gaf tvær stoðsendingar. Hann nýtti þó aðeins sex af nítján skotum sínum utan af velli.

Hlynur Bæringsson skoraði sautján stig og nýtti fimm af átta skotum sínum. Hann tók fimm fráköst og gaf fimm stoðsendingar.

Sundsvall er á toppi deildarinnar með 40 stig eftir 23 umferðir. Solna er í fjórða sætinu með 30 stig og Norrköping, lið Pavels Ermolinskij, er í sjötta sætinu með 28 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×