Körfubolti

Helena stigahæst í sigri Good Angels

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helena Sverrisdóttir var stigahæst hjá liði Good Angels Kosice þegar nýkrýndir bikarmeistarar í Slóvakíu unnu 17 stiga sigur á Samorin, 73-56, í lokaumferð úrvalsdeildar slóvakíska kvennakörfuboltans. Good Angels Kosice vann alla 18 leiki sína í deildinni en Samorin er í 3. sætinu.

Helena skoraði þrettán stig í leiknum en hún kom inn af bekknum og skoraði einu stigi meira en bandaríska stelpan Natasha Lacy. Helena er að stimpla sig betur inn í Good Angels liðið að undanförnu en hún skoraði 34 stig í síðustu tveimur deildarleikjunum. Hún var með 10,5 stig að meðaltali í leik í deildarkeppninni.

Það er hægt sjá myndband frá leiknum hér fyrir neðan en þar sést Helena skora nokkrar körfur með laglegum stökkskotum auk þess að keyra einu sinni upp að körfunni, skora körfu og fá víti að auki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×