Körfubolti

Jón Arnór frá í þrjár vikur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Stefán
Jón Arnór Stefánsson spilaði ekki með sínu liði, CAI Zaragoza, í spænsku úrvalsdeildinni í dag en hann verður frá næstu þrjár vikurnar vegna meiðsla.

Jón Arnór meiddist á hægri fæti í síðasta leik liðsins að því er kemur fram á heimasíðu félagsins.

CAI Zaragoza tapaði fyrir Valladolid í dag, 93-88, en liðið er í sjötta sæti deildarinnar. Valladolid er hins vegar í þrettánda sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×