Körfubolti

Hörður Axel með átta stig í sigri Mitteldeutscher

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hörður Axel Vilhjálmsson.
Hörður Axel Vilhjálmsson. Mynd/Daníel
Hörður Axel Vilhjálmsson og félagar í Mitteldeutscher unnu fjórtán stiga heimasigur á s.Oliver Baskets, 80-66, í þýsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld en þetta var fimmti sigur liðsins í síðustu sjö leikjum.

Hörður Axel Vilhjálmsson var með 8 stig, 3 fráköst og 2 stoðsendingar á 17 mínútum en hann skoraði öll stigin sín í fyrri hálfleik. Hörður Axel hitti úr 2 af 4 þriggja stiga skotum sínum í leiknum en aðeins 1 af 7 tveggja stiga skotum hans rötuðu rétta leið.

Bandaríkjamaðurinn Devin Uskoski var stigahæstur með 22 stig en gamli ÍR-ingurinn Kelly Beidler var með 11 stig og 6 fráköst.

Mitteldeutscher hefur nú unnið 7 af 17 leikjum sínum í þýsku úrvalsdeildinni og er eins og stendur í 13. sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×