Skoðun

Kennaramenntun á Íslandi – Stöndum með kennurum

Þórður Á. Hjaltested og Björg Bjarnadóttir skrifar
Í Fréttablaðinu 10. október 2012 er viðtal við Björgvin G. Sigurðsson, formann allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis, undir yfirskriftinni „Skoða styttingu náms í þrjú ár".

Kennarasamband Íslands (KÍ) telur það algjörlega galið að forystufólk þjóðarinnar sé í alvöru að hugsa á þessum nótum. Hvar er metnaður og framsýni yfirvalda? Á að kasta út um gluggann framsýnni stefnu sem sett var með heildarendurskoðun á lögum um skólastigin og menntun kennara og skólastjórnenda 2008? – Uppgjöf myndi einhver segja.

KÍ hefur haft það á stefnuskrá sinni um langt skeið að nám kennara sé eflt og styrkt. Sá áfangi náðist með lögum frá Alþingi 2008. Þar með stöndum við jafnfætis þeim þjóðum sem lengst hafa gengið. Lagabreytingin var gerð í samhengi við breytingu á lögum allra skólastiga og í samvinnu allra hagsmunaaðila, m.a. ríkis, Sambands íslenskra sveitarfélaga, samtaka foreldra og stéttarfélaga kennara. Um var að ræða mikið framfaraspor sem við getum verið verulega stolt af og eftir því hefur verið tekið í löndunum í kringum okkur.

Það var vitað að einhver fækkun yrði á nemendum við kennarabrautirnar fyrstu árin eftir að ný lög tækju gildi. Við verðum að horfa til framtíðar og því má það alls ekki gerast að þessu sé breytt aftur í fyrra horf. Það er engu minni ábyrgð að kenna nemendum á fyrsta skólastiginu, þ.e. leikskólanum, heldur en nemendum í grunnskóla eða framhaldsskóla. Það að leikskólakennari útskrifist með meistaragráðu er jafn mikilvægt og það er fyrir grunn- og framhaldsskólakennara. Menntun kennara á að vera samræmd. Það var eitt af lykilatriðum þess að hægt væri að tengja betur saman mörk skólastiganna og setja sameiginlega aðalnámskrá.

Við Íslendingar viljum vera í fremstu röð meðal þjóða þegar kemur að menntun. Við viljum að kennarar séu vel menntaðir og vel undirbúnir til að takast á við það mikilvæga verkefni að mennta börn og ungmenni í því fjölbreytta samfélagi sem við lifum í.

Nær væri að alþingismenn og sveitarstjórnarmenn færu að meta menntun betur til launa og búa kennurum betri starfsaðstæður. Kennarinn er háskólamenntaður sérfræðingur og á að vera metinn sem slíkur. Það sem fælir ungt fólk mest frá því að velja sér kennarastarfið sem framtíðarstarfsvettvang eru launakjörin sem í boði eru.

Við brýnum forystumenn þjóðarinnar til að beita sér af alvöru fyrir bættum kjörum kennara. Þá mun ungt fólk flykkjast í kennaranám.




Skoðun

Sjá meira


×