Alein með sálinni sinni í hörðum heimi Friðrika Benónýsdóttir skrifar 3. október 2012 09:26 Jesúsa „
Ég er ekki ástrík, mér líkar ekki við fólk. Ég hef alltaf verið þurr á manninn, hef aldrei orðið náin neinum. Ég er mikill pilsvargur og tala mjög hátt.“ Þannig lýsir Jesúsa Palancares, söguhetjan í bók Elenu Poniatowska, sjálfri sér. Sagan er stílfærð ævisaga hennar byggð á viðtölum sem Poniatowska tók við hana á efri árum. Rödd Jesúsu er sú eina sem heyrist í bókinni, hún er öll í beinni ræðu og vaðið úr einu í annað eins og fólk gerir í munnlegri frásögn. Lífið hefur vissulega hert hana og gert hana bitra en í gegn skín ótrúleg þrautseigja, einurð og baráttuvilji sem hrífur lesandann með sér og kveikir ást hans á þessari 150 sentímetra háu indíánakonu úr annarri heimsálfu. Jesúsa er fædd árið 1900 og saga hennar er um leið saga tuttugustu aldarinnar í Mexíkó. Tíu ára gömul er hún farin að fylgja föður sínum sem er hermaður í mexíkósku byltingunni, giftist síðan öðrum hermanni og heldur áfram að fylgja herdeild hans þar til hún verður ekkja, átján ára gömul. Hún hefur engan skilning á því um hvað þessi bylting snerist enda fullyrðir hún að sama rassgatið hafi verið undir öllum forkólfum hennar og að hermennirnir hafi skipt um lið um leið og þeirra lið fór að láta í minni pokann. Eftir að eiginmaðurinn deyr er Jesúsa ein á báti og óháð, vinnur fyrir sér með hverri skítavinnunni af annarri, drekkur og dansar og böðlast áfram. Þegar hún kynnist andatrú og fer að trúa því að hún sé miðill hættir hún drykkju og dansi en lífsbaráttan minnkar ekkert og hún vinnur erfiðisvinnu til 85 ára aldurs. Annað er ekki í boði. Heimur Jesúsu er ansi ólíkur þeim vestræna velferðarheimi sem við þekkjum, en hún á þó sameiginlegt með íslenskum kjarnakonum fyrri tíma að gefast aldrei upp, bogna stundum en brotna aldrei. Ferðalagið í gegnum líf hennar er engin lystireisa, en engu að síður verður lesandinn heltekinn af þessum heimi og þessari konu og kvíðir því einu að sagan taki enda. Þessi gallharði töffari sem vílar ekki fyrir sér að slást við karla jafnt sem konur með hnúum og hnefum, orðum og öskrum er karakter sem enginn ætti að missa af að kynnast. Þýðing Maríu Ránar Guðjónsdóttur rennur lipurlega og án þess að hafa tök á að bera hana saman við spænskan frumtextann finnst manni að nákvæmlega svona hljóti rödd Jesúsu að hljóma.
Mest lesið Elizabeth Hurley og Billy Ray Cyrus stinga saman nefjum Lífið Ótrúleg heimkoma Búbba sem fauk alla leið í Kópavog Lífið „Ég er mamma hans og á sama tíma er ég líka lífvörðurinn hans, túlkurinn hans og talsmaðurinn hans“ Lífið Ekki á leið í samband bara til að þóknast samfélaginu Lífið Íslendingurinn á bak við tugmilljarða myndina: „Þetta er eiginlega fram úr öllum vonum“ Bíó og sjónvarp Svarar því hve mörg páskaegg þurfi að borða til að bæta á sig kílói Lífið „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Tónlist Sjálfið okkar: Að verða okkar besta útgáfa Áskorun Páskakveðjur stjórnmálaflokka: Gervigreind, páskaeggjaleit og Sigmundur með kanínueyru Lífið Sunneva og Benedikt trúlofuð Lífið Fleiri fréttir Þetta er ástæðan fyrir því að þú átt aldrei að bjóða óperusöngvara í matarboð Spegill, spegill, herm þú mér, hve léleg endurgerðin er Rislítil ástarsaga Eldborg breyttist í vélrænt helvíti Kaldrifjað morð, ungar karlrembur og kæfandi andrúmsloft Strípibúlluást sem hleypir öllu í háaloft Stormur fellur á prófinu Víkingur Heiðar á fjölbreyttri afmælisveislu með ljóslifandi hápunktum Leiksigur Ladda Elísabet fær uppreist æru Sjá meira
„Ég er mamma hans og á sama tíma er ég líka lífvörðurinn hans, túlkurinn hans og talsmaðurinn hans“ Lífið
Íslendingurinn á bak við tugmilljarða myndina: „Þetta er eiginlega fram úr öllum vonum“ Bíó og sjónvarp
„Ég er mamma hans og á sama tíma er ég líka lífvörðurinn hans, túlkurinn hans og talsmaðurinn hans“ Lífið
Íslendingurinn á bak við tugmilljarða myndina: „Þetta er eiginlega fram úr öllum vonum“ Bíó og sjónvarp