Viðskipti erlent

Bankar fá fé beint úr neyðarsjóðum

Angela Merkel, kanslari Þýskalands, á tali við Mario Draghi, bankastjóra Evrópubankans, og Mario Monti, forsætisráðherra Ítalíu.
nordicphotos/afp
Angela Merkel, kanslari Þýskalands, á tali við Mario Draghi, bankastjóra Evrópubankans, og Mario Monti, forsætisráðherra Ítalíu. nordicphotos/afp
Leiðtogar ríkjanna á Evrusvæðinu hafa komist að samkomulagi um lausn á vandræðunum með gjaldmiðilinn. Einnig hafa langtímamarkmið verið sett. Leiðtogarnir funduðu í Brussel í gær.

Leiðtogar evruríkjanna sautján samþykktu að veita úr björgunarsjóðum beint til evrópskra banka í vandræðum, í stað þess að lána ríkisstjórnum til að bjarga bönkunum.

Björgunarsjóðir verða einnig notaðir til að skapa stöðugleika um evrópsk ríkisskuldabréf. Þau ríki sem tekið hafa til í ríkisrekstri sínum geta fengið fé úr björgunarsjóðinum án þess að skuldbinda sig mikið. Evrópuríkin samþykktu jafnframt að binda fastari hnúta um fjármál sín, gjaldmiðla og stjórnvöld. Þannig verður hægt að skapa nýtt og stærra efnahagslegt samband í framtíðinni.

Ávöxtunarkröfur á ríkisskuldabréf Spánverja og Ítala lækkuðu vegna samkomulagsins í gær.

Þrátt fyrir jákvæð viðbrögð í gær ríkja enn áhyggjur yfir ástandinu í Evrópu. Flest úrræðin sem samþykkt voru verða mánuði að taka gildi og 500 milljarða evra innspýtingin gæti reynst of lítil.- bþh






Fleiri fréttir

Sjá meira


×