Skoðun

Þetta sem helst nú varast vann…

Einar K. Guðfinnsson skrifar
Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur skrifar grein í Fréttablaðið um upplifun sína af umræðum um fiskveiðistjórnarmálin upp á síðkastið. Höfundurinn varar við gífuryrðum og órökstuddum sleggjudómum. Það er gott og blessað. En hitt er auðvitað lakara að hann hittir sjálfan sig þar fyrir. Í greininni fellur Guðmundur nefnilega sjálfur ofan í forarpyttina með sleggjudómum og órökstuddum fullyrðingum.

„Þetta sem helst nú varast vann varð samt að koma yfir hann." Guðmundur Andri segir til dæmis:

„Sjálfstæðismenn tala eins og það jafngildi vist í Gúlaginu að fá ekki lengur að græða peninga á hvaða hátt sem er." Þetta er vitaskuld fráleit fullyrðing og gjörsamlega út í hött, enda gerir hann enga tilraun til þess að styðja þessi orð sín dæmum eða rökum.

Við sjálfstæðismenn höfum varað mjög við afleiðingum frumvarpa ríkisstjórnarinnar um sjávarútvegsmál. Það höfum við reynt að gera með rökum, eins og mikil efna standa til. Sjónarmið okkar eru ekki óumdeild, langt því frá. En það er ekki eins og við höfum staðið einir í þessum málflutningi. Þvert á móti. Sjávarútvegsfrumvörpin hafa verið harðlega gagnrýnd úr öllum áttum.

Sjómenn, útgerðarmenn, trillukarlar, fiskverkendur, fræðimenn, fulltrúar fjármálafyrirtækjanna, ASÍ, verkalýðsfélög, sveitarfélög og fleiri og fleiri hafa varað við. Því miður hafa viðbrögðin verið gamalkunnug. Það er reynt að vaða í manninn, en ekki boltann.

Þeir sem vilja tileinka sér þannig umræðu vita vel að þá er það ágæt aðferð að kynda undir þekktum fordómum um útgerðarmenn; að þeir berji sífellt lóminn. Hrópi úlfur, úlfur og því sé réttast að taka sem minnst mark á þeim. Þetta var grunnstefið í grein Guðmundar Andra.

Svona aðferð er kunnugleg. Var okkur ekki sagt fyrir hrun að ekkert væri að marka viðvörunarorð sem heyrðust frá Danmörku, af því að þar væru menn svo öfundsjúkir yfir velgengni manna úr gömlu nýlendunni? Og fleiri álíka orð féllu þá í þessa veru, sem við ættum að læra af, en forðast að tileinka okkur þau vinnubrögð.

Það er þess vegna stórháskalegt að drepa niður réttmætar viðvaranir með því að freista þess að ófrægja þá sem setja þær fram. Skipulag fiskveiða er nefnilega gríðarlega þýðingarmikið mál og varðar hag okkar allra. En til þess að þjóðin geti notið arðs af þeirri atvinnustarfsemi, þarf að gæta þess að fyrirtækin geti dafnað. Og er það einmitt mergurinn málsins? Sjónarmið okkar sjálfstæðismanna hafa verið að með nýju sjávarútvegsfrumvörpunum sé þessum sjálfsögðu sannindum einmitt varpað fyrir borð.

Og það eru ekki bara sjómennirnir, útgerðarmennirnir, fiskvinnslufólkið, fiskverkendurnir sem tapa á því háttalagi. Heldur líka við hin, hvort sem við fáumst við stjórnmál eða orðsins listir.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×