Lífið

Tjaldstemning á Þýska barnum

Þýsk stemning Baldvin Samúelsson segir mikið verða lagt upp úr að skapa alvöru þýska stemningu á Þýska barnum.Fréttablaðið/Vilhelm
Þýsk stemning Baldvin Samúelsson segir mikið verða lagt upp úr að skapa alvöru þýska stemningu á Þýska barnum.Fréttablaðið/Vilhelm
„Það verður alvöru þýsk stemning þarna. Hægt verður að fá bjór í lítrakönnum og allt starfsfólk verður klætt í hefðbundinn þýskan klæðnað, dirndl og lederhosen," segir Baldvin Arnar Samúelsson, einn eigenda Þýska barsins.

Stefnt er á að opna barinn um miðjan mars og eru framkvæmdir á fullu um þessar mundir. „Það er búið að rífa allt út úr húsinu og við ætlum að endurinnrétta algjörlega. Það verður fest efni í loftið til að mynda tjaldstemningu inni á staðnum, og verið er að smíða viðarbekki eins og þekkjast á bjórhátíðum þar ytra," segir Baldvin.

Hægt verður að fá fjölda tegunda af bjór á krana, þar á meðal hveitibjór, auk þess sem bruggaður verður sérstakur bjór fyrir Þýska barinn sem aðeins verður hægt að fá þar. Lifandi tónlist verður á hverju kvöldi, hljómsveitir stíga á stokk allar helgar og útsendingar verða frá öllum helstu íþróttaviðburðum.

„Við verðum yfirlýstur stuðningsaðili Þýskalands á EM í sumar," segir Baddi og bætir við að Ísland verði þó hvatt áfram á Ólympíuleikunum, komist liðið í gegnum umspil, þar sem þýska handboltaliðið verður ekki með.

Baldvin segir marga koma að þessu spennandi verkefni og hóp manna standa að baki barnum.

Staðurinn verður til húsa að Tryggvagötu 22, þar sem Bakkus var síðast og mun rúma á milli 350 og 400 manns.- trs






Fleiri fréttir

Sjá meira


×