Lífið

Blíðar móttökur aðdénda Pain of Salvation í Evrópu

Ragnar Sólberg ferðast nú um Evrópu ásamt hljómsveitinni Pain of Salvation.
Ragnar Sólberg ferðast nú um Evrópu ásamt hljómsveitinni Pain of Salvation. Fréttablaðið/Stefán
„Ég hef fengið mjög góðar viðtökur. Bæði frá gagnrýnendum og aðdáendum - þau virðast strax vera búin að samþykkja mig," segir tónlistarmaðurinn Ragnar Sólberg.

Ragnar gekk nýlega til liðs við sænsku progg-þungarokkhljómsveitina Pain of Salvation.

Hljómsveitin á aðdáendur víða um heim og er núna á tónleikaferðalagi um Evrópu. Ragnar er ánægður með viðtökurnar, en hann bjóst ekki við að þær yrðu svona góðar.

„Ég bjóst algjörlega við því að mæta mótspyrnu og var viðbúinn því að þurfa að hrækja framan í mótmælendur, en ég er alveg búinn að sleppa við það hingað til," segir Ragnar, sem var staddur í Suður-Frakklandi þegar Fréttablaðið náði í hann. Hann segir að mórallinn í hljómsveitinni hafi verið góður frá fyrsta degi tónleikaferðalagsins, sem hófst í Skotlandi 10. febrúar. „Það er auðvitað voða mikill einkahúmor í gangi," segir Ragnar.

„Sérstaklega hjá mér og trommaranum, báðir erum við innflytjendur og leikum okkur glatt að því að bulla á sænsku og búa til ný orð og svona. Tæknimennirnir og rótararnir eru á svipuðum aldri og ég og fullir af fjöri, fara seinastir að sofa og vakna fyrstir með bros á vör. Maður er náttúrulega löngu búinn að snúa sólarhringnum við þannig að aðallífið er á næturna, yfirleitt að hlusta á Kiss eða horfa á myndir á meðan rótararnir djamma í sínu horni."

Ragnar er kominn til Spánar og kom fram ásamt Pain of Salvtaion í Madríd í gær og kemur fram í Barselóna í kvöld. Tónleikaferðalagið endar svo í Stokkhólmi í 26. mars eftir viðkomu í 14 löndum Evrópu á rúmum mánuði.

atlifannar@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×