Alexander Petersson verður ekki með íslenska landsliðinu á HM á Spáni Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 21. desember 2012 09:46 Alexander Petersson hefur verið lykilmaður í vörn sem sókn í íslenska landsliðinu undanfarin ár. Nordicphotos/Getty
Alexander Petersson verður ekki með íslenska landsliðinu í handknattleik á heimsmeistaramótinu sem fram fer á Spáni í janúar. Alexander hefur glímt við meiðsli í öxl í lengri tíma og þarf á langþráðri hvíld að halda. Handbolti Alexander Petersson gefur ekki kost á sér í íslenska landsliðið í handknattleik á HM á Spáni sem fram fer í janúar. Alexander var í 28 manna hópi sem landsliðsþjálfarinn Aron Kristjánsson tilkynnti í vikunni þó vonin um þátttöku hans væri veik. Nú hefur allur vafi verið tekinn af. „Ég hef tekið þá ákvörðun að vera ekki með í þetta sinn því ég tel að það sé mikilvægara fyrir mig og landsliðið að ég nái mér góðum og komi þá enn sterkari til leiks í framtíðinni," segir Alexander í samtali við Fréttablaðið og Vísi. Örvhenta skyttan hefur glímt við meiðsli á öxl í langan tíma. Meiðslin plöguðu Alexander einnig í aðdraganda Evrópumótsins í Serbíu í janúar en hann gaf engu að síður kost á sér. Hann spilaði töluvert framan af móti en svo sagði líkaminn stopp. Hann segir það sennilega hafa verið mistök að gefa kost á sér og hann hafi lært af þeim mistökum. „Í þetta sinn er ég að hlusta á líkama minn sem hefur ekki fengið frí í eitt og hálft ár. Það er ekki mannlegt að spila á þremur stórmótum á einu ári. Það mun verða mjög erfitt að horfa á strákana spila og ekki geta verið með," segir Alexander sem varð 32 ára í júlí. Það sé ósk hans að fólk skilji og virði ákvörðun sína. Það sé ólíkt að spila með félagsliði og á stórmóti þar sem leikjaálagið er gífurlegt og hver einasti leikur upp á líf eða dauða. Verkir fylgja hverju skotiAlexander skoraði fimm mörk í sigri Rhein-Neckar Löwen á Balingen á miðvikudagskvöldið. Þeirra á meðal var sigurmarkið en Alexander hafði lítið komið við sögu í leikjum Löwen síðan liðið mætti Kiel í lok nóvember. Síðan þá hafi hann æft án þess að geta skotið og um tíma gat hann ekki einu sinni sent boltann. „Ég hef ekki getað kastað bolta af fullum krafti í rúmar þrjár vikur. Þessi leikur var mjög mikilvægur fyrir liðið mitt og ég vildi reyna að hjálpa eins mikið og ég gat," segir Alexander en mörk hans komu ekki úr hörkuskotum heldur af stuttum færum. „Ég tók verkjalyf fyrir leik sem ég geri helst ekki en það hjálpaði örlítið. Flest mörkin komu af 6-7 metrum og krafturinn var ekkert í líkingu við þann sem ég hafði áður. Eftir hvert skot fylgdu verkir og mun ég gjalda fyrir það næstu daga," segir Alexander sem hefur þó verið til taks á bekknum. „Guðmundur (Þórður Guðmundsson, þjálfari Rhein-Neckar Löwen) hefur viljað hafa mig á bekknum meira sem stuðning og til að veita liðsfélögum mínum öryggi. Í síðustu leikjum hef ég komið inná í vörn og í stöku sókn til að hvíla Isaias Gardiola. Stundum kemur önnur hreyfing á sóknina við það og þannig get ég hjálpað liðinu," segir Alexander. Tími Ásgeirs Arnar kominnAuk Alexanders ríkir mikil óvissa um hvort Ólafur Stefánsson gefi kost á sér í landsliðið. Alexander minnir á að landsliðið sé vel mannað þrátt fyir fjarveru sína og jafnvel Ólafs Stefánssonar. „Ég hef spilað nánast 60 mínútur í hverjum einasta leik bæði með félagsliði sem og landsliði undanfarin ár og þarf núna örlitla hvíld," segir Alexander. Útlit er fyrir að mikil ábyrgð muni hvíla á Ásgeiri Erni Hallgrímssyni í stöðu hægri skyttu og Alexander segir tíma kominn á Hafnfirðinginn. „Ég hef fulla trúa á Ásgeiri Erni sem er frábær leikmaður í bæði vörn sem sókn og getur vel fyllt í skarð mitt og Óla. Nú er hans tími kominn til að sanna sig," segir Alexander sem óskar félögum sínum í landsliðinu góðs gengis á Spáni. „Hingað til hef ég hugsað til skemmri tíma og oft tekið þátt í stórmótum og barist við meiðsli á sama tíma. Þetta er mjög erfið ákvörðun en ég tel að ég muni koma sterkari til baka. Jafnvel vélmenni þurfa að fara í viðgerð," segir Alexander á léttu nótunum.
Mest lesið Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Handbolti Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Handbolti Åge Hareide látinn Fótbolti Snorri kynnti EM-strákana okkar Handbolti Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Handbolti „Eitt ótrúlegasta augnablik sem þú sérð í hvaða íþrótt sem er“ Sport Strasbourg - Breiðablik | Tekst Blikum að tryggja sig áfram? Fótbolti Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Enski boltinn Fótboltamaður skotinn til bana Fótbolti Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Handbolti Fleiri fréttir KA/Þór - Valur 23-30 | Ótrúlegur viðsnúningur gestanna Ómar óstöðvandi og Magdeburg í undanúrslit Ómar Ingi fær meiri ábyrgð og tekur við kyndlinum af Aroni Ekkert stríð við Porto og einstakur Þorsteinn nítjándi maður Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Snorri kynnti EM-strákana okkar Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Geggjaðar Eyjakonur á toppinn Þorsteinn Leó að ná sér „langt á undan áætlun“ Birtu tölvupóst þar sem efast er um heilsu forseta IHF Valdi ekki eigin leikmann í landsliðið Halda Orra og Sporting engin bönd Viktor Gísli stóð vaktina er fullkomið gengi Börsunga hélt áfram Snorri kynnir EM-fara í vikunni Mega handvelja lið utan Evrópu inn í Meistaradeildina EM ekki í hættu Á hækjum á milli leikja og þoldi sífellt verri sársauka Uppgjörið: Haukar - Fram 25-27 | Meistararnir unnu toppliðið í naglbít „Fannst við bara lélegir í kvöld“ Botnliðið hrellti Aftureldingu og KA lék sér að eldinum Flott endurkoma FH og Valur vann í 83 marka leik Elliði framlengir dvölina í Gummersbach Þórir í skýjunum: „Sit með lítið tár í augnkróknum“ Tíu mörk frá Hauki ekki nóg Reistad valin best og Katrine Lunde besti markvörðurinn Ómar Ingi fiskaði vítið sem gaf sigurmarkið í Íslendingaslag Katrine Lunde fékk draumaendinn sinn og þær norsku urðu heimsmeistarar Sjá meira