Körfubolti

Hörður Axel með tíu stig í sigurleik

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hörður Axel Vilhjálmsson.
Hörður Axel Vilhjálmsson. Mynd/Daníel
Hörður Axel Vilhjálmsson skoraði 10 stig þegar Mitteldeutscher BC vann fimm stiga heimasigur á LTi GIESSEN 46ers, 93-88, í framlengdum leik í þýsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Hörður Axel var einnig með þrjú fráköst, þrjár stoðsendingar og einn stolinn bolta á þeim tæpu 33 mínútum sem hann spilaði í leiknum en hann hitti úr 3 af 10 þriggja stiga skotum sínum.

Hörður Axel innsiglaði sigurinn með því að setja niður annað af tveimur vítaskotum þegar ein sekúnda var eftir af leiknum.

Þetta var þriðji heimasigur Mitteldeutscher-liðsins í röð en liðið er nú 13. sæti deildarinnar eftir fjóra sigra í síðustu fimm deildarleikjumm sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×