Körfubolti

Skoruðu aðeins tvö stig í heilum körfuboltaleik

Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Það er venjulega mikið skorað í körfubolta en kvennalið Arlington framhaldsskólans tókst það sem flestir töldu ómögulegt. Að skora aðeins tvö stig í einum leik.

Lokatölur í leik Arlington og Bloomington South-framhaldsskólans voru 107-2. Bæði stig Arlington komu af vítalínunni. Fyrra stigið kom í fyrsta leikhluta en hið síðara í þeim þriðja.

Lið Bloomington var alls ekki að keyra á sínu besta liði allan tímann og fengu allir leikmenn liðsins að spila.

Það breytti engu hver var inn. Stelpurnar frá Arlington gátu ekki keypt körfu utan af velli og það þessi sigur fer klárlega í sögubækurnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×